… en bara man ekkert hvað ég hef gert, svona svoldið eins og með öll matarboðin í síðustu færslu… man nú samt alveg eftir afmælinu sem ég fór í í gær. Hún Pia átti afmæli og við fengum dýrindis kræsingar til að jamla á í sólinni á svölunum hjá henni, hef örugglega sagt öllum sem lesa þetta blogg oft og mörgum sinnum hvað það er gaman að komast í veislu hjá Piu, það er alltaf eitthvað öðruvísi og spennandi á boðstólum og alltaf svakalega ferskt og braðgott. Líka í gær, nammi namm. Svakalega góð súkkulaðikaka, brauð og álegg og fleira fínerí mmmm brómber!
Við mamma, Ríkarður og Jón Þór fórum í búðarráp í gær, mamma gaf flókanum tripp trapp stól og ég keypti pelahitara fyrir ferðalagið í næstu viku og eitthvað fleira, man ekki alveg hvað það var. Man samt að við fengum ís.
Og já döh! við Bjarki fórum í bíó um helgina og Valla og Elvar komu og pössuðu, sjitt hvað heilinn á mér er eitthvað gatasigtalegur þessa dagana. DIE HARD 4. Vííí hvað ég hafði gaman að henni. Ógeðslega fyndið í lokin þegar búið var að drepa alla vondu kallana (nei þetta er ekki spoiler, vondu karlarnir drepast alltaf í lokin á svona myndum), skaðinn af heimsyfirráðatilburðum vondukallana var svo ótrúlega mikill (ég meina ef það kostar skrilljón trilljón að gera eina sundabraut og tekur 10 ár eða eitthvað álíka, þá eiga næstu 10 ár í Die hard heimi eftir að verða ansi pirrandi) og það var enginn að pæla í því, allt var komið í lag vondu karlarnir voru dauðir! Vííí…
Ríkarður fór líka á kaffihúsí fyrsta sinn á laugardaginn, Vegamót og fannst þetta ekkert smá spennandi. Þá vitum við hvar hann verður eftir 15-20 ár… ég var aftur á móti við það að fá í bakið ég var svo stressuð að sólin myndi skína á hann og sat því í mjög skrítinni stellingu að puða við að búa til skugga á hann.
Laugardagur var semsagt dagur nýrra upplifanna hjá Flóka, kaffihús, amma og afi að passa hann um miðja nótt
og svo fór hann líka í strætó í fyrsta sinn og í húsdýragarðinn í fyrsta sinn, en þar sem hann er bara 3 mánaða veit ég ekki alveg hvort það sé hægt að segja að hann hafi upplifað þetta eitthvað… og svo náttúrulega var hann steinsofandi í strætónum.
Ekki slæm upprifjun hjá gatasigtisgellunni, svona ef við hugsum ekkert út í það að ég man semsagt bara eftir 2 dögum…